Búum okkur undir hækkandi olíuverð

Gott framtak hjá þeim félögum. Við Íslendingar verðum að fara að móta orkustefnu til framtíðar. Olíuframleiðsla í heiminum hefur náð hámarki og mun fara minnkandi á næstu áratugum. Þegar það fer saman við síaukna eftirspurn, getur það aðeins þýtt hækkandi olíuverð. Kolun (pýrólýsa) á lífrænu efni, svo sem sorpi og ræktuðum lífmassa af ýmsu tagi, er ein af þeim leiðum sem tiltækar eru til þess að framleiða fljótandi eldsneyti eða gastegundir svo sem metan og vetni. Tækni við kolun er í örri þróun og kolunarverksmiðjur eru að verða fullkomnari og nýta nú hráefni betur en hægt var með eldri tækni. Stofnkostnaður er samt töluverður og samkeppnisstaða lífolíunnar (bio oil) eða lífdísilolíunnar (bio diesel) hefur verið erfið á markaði. Þrátt fyrir allt tal um að dísilolía sé orðin dýr er hún enn tiltölulega ódýrt eldsneyti. Það á eftir að breytast. Háværar kröfur eru um að ríkisstjórnir bregðist við hækkandi olíuverði með því að minnka skattlagningu sína á olíuna. Það væri í raun það sama og að pissa í skóinn til þess að halda lengur á sér hita. Skynsamlegra er að yfirvöld í öllum löndum nýti skatta af olíu og bensíni til þess að stuðla að sjálfbærri orkuframleiðslu.

Þess má einnig geta að kolun er frábær aðferð við að leysa sorpvandamál. Urðun og brennsla á lífrænu sorpi er bæði sóun á verðmætum og mikill mengunarvaldur eins og dæmin sanna.


mbl.is Framleiðir pýrólýsuolíu úr lífrænum úrgangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband