Gleðilegt nýtt ár

Alþingi hefur nú samþykkt ríkisábyrgð vegna Icesave samninganna.  Þetta mál hefur tekið nær allan tíma Alþingis í meira en hálft ár.  Það hefur allan tímann legið fyrir að við yrðum að borga vexti og afborganir af þeim lánum sem Bretar og Hollendingar veittu okkur vegna þessara ábyrgða, en deilan hefur staðið um það hvort samninganefnin hefur staðið sig illa  eða hvort þetta séu bestu samningar sem unnt hafi verið að ná. Stjórnarandstaðan hefur sífellt komið fram með nýjar kröfur um upplýsingar og undanþágur og stjórnarflokkarnir hafa sýnt ótrúlegt langlundargeð gagnvart þessum kröfum, sem þó var ljóst að stjórnarandstaðan mundi aldrei taka neiit tillit til þegar til þess kæmi að greiða atkvæði um samkomulagið. Þetta kom endanlega í ljós í kvöld. Flokkarnir sem stærsta ábyrgð bera á vandræðunum eru í afneitun og verða það líklega lengi enn.
mbl.is Alþingi samþykkti Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Óskarsson

Miðað við þetta þá megum við semsagt búast við því að "Skjaldborgin um heimilin" verði mynduð þann 26.janúar næstkomandi ?  Eða er það ekki ?

Jón Óskarsson, 31.12.2009 kl. 00:32

2 Smámynd: Eirikur

Fantastic News.....Now Iceland can start to build up trust again....And I am sure that the British will help as much as they can.....This is what was needed..........Afram Island !!!!

Eirikur , 31.12.2009 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband